AHS og COVID-19

Component: Intro Block (styling not included)

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins (AHS) fundaði í gærmorgun og fór yfir þær aðgerðir sem neyðarstjórnir sveitarfélaganna stóðu fyrir á COVID-19 tímanum í vetur.  Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem jafnframt er formaður almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins setti fundinn og rakti atburðarásina í stuttu máli.

Kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna ásamt neyðarstjórnum sveitarfélaganna var boðin seta á fundinum.

Component: Image and text (styling not included)

Vel unnin störf

Dagur nýtti tækifærið til að hrósa starfsfólki sveitarfélaganna fyrir vel unnin störf, en mikið hefur mætt á þeirra starfsemi og hafa þau þurft á skömmum tíma að umturna starfseminni, huga að þeim verkefnum sem eru samfélagslega mikilvæg og að órofinni þjónustu. Dagur hrósaði einnig þríeykinu fyrir þeirra framlag og fór sérstaklega yfir hversu jákvætt það hafi verið að þau ákváðu að hafa upplýsingar tíðar og allt ferlið gegnsætt.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

Covid-19

Þann 31. janúar fundaði almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins með sóttvarnalækni þar sem fjallað var um veiruna sem þá gekk undir nafninu Wuhan, voru skilaboðin eftir þann fund að hvetja sveitarfélög til að kalla saman neyðarstjórnir sínar, virkja viðbragðsáætlanir og horfa til áætlunar um heimsfaraldur inflúensu. Einnig var hvatt til að búa alla starfsemi sveitarfélaga undir það að færast af óvissustigi yfir á hættustig.

Texti á takka

Hættustigi var lýst yfir þann 28. febrúar þegar fyrsta smit greinist á landinu og hækkað upp í neyðarstig þann 6. mars og var landið í 80 daga á neyðarstigi. Á þeim tíma fundaði AHS þrisvar sinnum og almannavarnaráð AHS 9 sinnum. Sveitarfélögin og neyðarstjórnir þeirra nýttu tímann frá fundinum í janúar og fram að fyrsta smiti mjög vel til að undirbúa sig sem best og unnu þau þétt saman við að leysa flókin verkefni sem upp komu. Unnið var eftir nokkrum viðbraðsáætlunum áætlunum bæði landsáætlunum sem og sértækum áætlunum. Samvinna var lykilatriði á þessu tíma og það var mikið heillaspor að virkja neyðarstjórnir svo snemma í faraldrinum.

Þórólfur Guðnasson sóttvarnarlæknir fór yfir þær áskoranir sem við stóðum frammi fyrir sem þjóð og þau verkefni sem eru óleyst í dag eins og opnun landamæranna. Engin reynsla er um þá afléttingu sem þarf að fara fram á landamærum í heiminum í dag. Út frá smitsjúkdómum þá var ótrúlegt hvað faraldurinn fór hratt af stað hér hjá okkur og hvað hann hrundi hratt niður. Hann ítrekaði mikilvægi þess að við tryggðum þann árangur sem við höfðu náð og við verðum að vera á varðbergi varðandi það að fá ný smit inn í landið. Margt er í þróun víða í heiminum og vantar stöðlun t.d. á vottorðum og því mun Ísland ekki taka gild vottorð frá öðrum löndum. Hann ítrekaði mikilvægi þess að við þurfum að opna landamærin en stíga varlega til jarðar.

Component: Image and text (styling not included)

Stærsta verkefni almannavarna

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði að verkefnið hafi verið stærsta verkefni almannavarna á Íslandi þar sem allt landið var undir í einu sem og allur heimurinn. Við höfum staðið frammi fyrir heilbrigðismáli af óþekktri stærð og að samfélagsleg áhrif væru gríðarleg. Hann var þakklátur framlagi starfsmanna sveitarfélaga á þessum tímum.

Texti á takka

Víðir þakkaði einnig fyrir allt það fagfólk sem lagðist á árarnar til að leysa þau verkefni sem upp komu, það væri mikilvægt í krísum að vera með valddreifingu byggða á sérfræðiþekkingu.

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins áréttaði að það hafi verið mikil gæfa hversu snemma neyðarstjórnir voru kallaðar saman. Því um leið og sú vinna hófst þá var það hlutverk starfsfólks AHS að aðstoða og styðja við neyðarstjórnirnar sem leiddu starfið allan tímann hvert í sínu sveitarfélagi og féll aldrei skuggi á samstarf og samræmingu þeirra á milli. Hann tók undir það sem fram hafði komið að það hefði verið mikil gæfa hversu vel öll sveitarfélögin hafi unnið saman og aðdáunarvert að sjá hversu öflugir starfsmenn þeirra sem og aðrir starfsmenn sveitarfélaganna voru við erfiðar aðstæður undir styrkri stjórn framkvæmdastjóra sveitarfélaganna sem eru borgarstjóri og bæjarstjórar á svæðinu.

Fulltrúar sveitarfélaganna á svæðinu tóku einnig til máls á fundinum og var rauði þráðurinn í þeirra máli ánægja með upplýsingamiðlun á þessum tíma. Samhugur var um mikilvægi neyðarstjórna og að það hafi verið grundvallaratriði hversu fljótt þær voru virkjaðar.