Eigið eldvarnaeftirlit

Component: Intro Block (styling not included)

Mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir séu með eigið skjalfest eldvarnaeftirlit. Í litlum og meðalstórum fyrirtækjum er æskilegt að ábyrgðarmenn brunavarna sjái sjálfir um eldvarnareftirlitið og séu þ.a.l. meðvitaðir um öryggi starfmanna sinna og viðskiptavina. Í stærri fyrirtækjum og/eða þar sem áhætta er mikil getur verið nauðsynlegt að fá verkfræðistofu eða aðra fagaðila til aðstoðar við skipulagningu, eða til að sjá alfarið um alla þætti eftirlitsins.

Þegar talað er um eigið eldvarnaeftirlit í fyrirtækjum og stofnunum er átt við að eigandi og/eða forráðamaður axli þá ábyrgð sem lög og reglugerðir kveða á um og að eftirlit með brunavörnum bygginga sé skriflegt með gátlistum og að minnsta kosti mánaðarlegt. Í þeim tilfellum þar sem unnið er með eldfim eða hættuleg efni getur verið nauðsynlegt að eftirlitið sé tíðara. Hér eru að finna leiðbeiningar og ýmis skjöl er varða eigið eldvarnaeftirlit.

Gátlistar eldvarnaeftirlits og ýmis önnur skjöl

Component: Image and text (styling not included)

Framkvæmd

Í reglugerð um eigið eftirlit eigenda og forráðamanna með brunavörnum í atvinnuhúsnæði segir að eftirlit skuli vera daglegt og reglubundið, á eigin vegum og fyrir eigið fé, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða stofnun. Eftirlitið getur verið framkvæmt af eigendum/forráðamönnum, starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis eða utanaðkomandi fagaðilum. Eins er nauðsynlegt að í hverju fyrirtæki sé til áætlun um hvernig brugðist skuli við boðum frá brunaviðvörunarkerfi og hvernig best sé staðið að rýmingu byggingar í eldsvoða.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

Verkaskipting eiganda og rekstraraðila

Í mörgum tilfellum er rekstraraðili fyrirtækis ekki sá sami og eigandi byggingar en það er alveg skýrt í lögum að það er eigandi byggingarinnar sem ber ábyrgð á því að brunavarnir séu í lagi.

Texti á takka

Í þeim tilfellum sem þetta er ekki sami aðili þarf verkaskipting á milli þeirra að vera skýr og gátlistar eru nauðsynlegir til að ná fram markvissu eftirliti. Eðlilegt, og oft á tíðum nauðsynlegt, er að eigandi byggingar feli leigutaka eða rekstraraðila að sjá um ákveðna þætti eldvarna.  Allt sem t.d. snýr að daglegri umgengni og öryggi fólks heyri þannig beint undir hann þar sem ekki er auðvelt fyrir húseiganda að sjá um eftirlit með slíku. Bestur árangur næst með góðri samvinnu og að allir aðilar axli ábyrgð sýna og sinna verkaskiptingu milli aðila. Sjá þína ábyrgð hér fyrir neðan.

Component: Accordions (styling not included)

Hver er mín ábyrgð?

Title: Ábyrgð eiganda Content:
  • Húsnæðið sé í góðu ástandi og í samræmi við samþykktar teikningar
  • Allar meginbrunavarnir séu í lagi eins og lög og reglur kveða á um
  • Dyr og björgunarop séu opnanleg innanfrá án lykils eða annarra verkfæra
  • Leiðar og neyðarlýsing sé til staðar virk og í lagi
  • Brunahólfun sé í lagi, brunahólfandi dyr virki rétt og séu þéttar
  • Brunaviðvörunar-, vatnsúða- önnur slökkvikerfi og reyklosunarbúnaður séu í lagi
Title: Ábyrgð rekstraraðila Content:
  • Allar flóttaleiðir séu greiðfærar þannig að skjót rýming úr byggingunni sé tryggð
  • Leiðar og neyðarljós séu virk og í lagi þannig að fólk rati örugglega út ef upp kemur eldur
  • Reykskynjarar séu virkir og rafhlöður í lagi
  • Ruslasöfnun sé í lágmarki og aðgangur að handslökkvitækjum og öðrum slökkvibúnaði óheftur
  • Upplýsa eiganda húsnæðis strax ef eitthvað kemur upp sem rýrir brunavarnir
Component: Intro Block (styling not included)

Intro texti

Intro texti minni

Component: Image and text (styling not included)

Helstu þættir eigin eldvarnaeftirlits

Að ýmsu er að hyggja þegar hefja á eigið eldvarnaeftirlit en hér á eftir verður fjallað um níu meginþætti sem tryggja þarf til þess að eldvarnaeftirlit geti skilað sem mestum árangri. Nánar má lesa um þessa þætti á eftirfarandi hlekk.

Helstu þættir eigin eldvarnaeftirlits

Viðbragðsáætlanir

Component: Intro Block (styling not included)

Ásamt þessum atriðum þarf að hafa í huga og undirbúa viðbragðsáætlanir. Fyritæki og stofnanir eig að vera með viðbragðsáætlanir til að tryggja rétt viðbrögð og öryggi starfsmanna ef eldur verður laus. Sjá umfjöllun um viðbragðsáætlanir á eftirfarandi hlekk.

Intro texti minni