Skipurit

Component: Intro Block (styling not included)

Starfsemi okkar okkar skiptist í tvö kjarnasvið; forvarnasvið og aðgerðasvið, og þrjár stoðeiningar; skrifstofu slökkviliðsstjóra, mannauð og almannatengsl og fjármál. Starfsfólk SHS er rúmlega 200 með víðtæka reynslu, þekkingu og þjálfun til að takast á við krefjandi og ólík verkefni.

Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og stýrir daglegum rekstri í samræmi við starfs- og fjárhagsáætlun sem stjórn byggðasamlagsins hefur samþykkt.

Component: Image and text (styling not included)

Aðgerðasvið

Á aðgerðasviði starfa einstaklingar sem sinna slökkvistarfi og sjúkraflutningum. Auk þess eru slökkviliðsmenn í hlutastarfi á Kjalarnesi og samningur í gildi við björgunarsveitina Kjöl sem þar er staðsett um að veita aðstoð ef þörf krefur.

Hlutverk aðgerðasviðs er að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir samfélagsins þegar hætta steðjar að.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

Forvarnasvið

Forvarnasvið hefur það hlutverk að tryggja sem best öryggi íbúa gegn eldsvoða og afleiðingum hans. Á sviðinu starfa 11 manns, sviðsstjóri forvarnasviðs heyrir beint undir slökkviliðsstjóra og ber ábyrgð á daglegum rekstri sviðsins og stefnumótun.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

Stoðeiningar

Stoðeiningar sinna daglegri þjónustu við eigendur, stjórnendur og starfsfólk slökkviliðsins.

Helstu verkefni eru bókhald, launavinnsla, innheimta, eftirlit með innkaupum, upplýsingagjöf bæði innan SHS sem og út á við. Einnig er ýmis greiningarvinna , tölfræði, hugbúnaðarþróun, tölvu- og tæknimál, gæðamál, skjalamál, innra eftirlit og áhættustýring.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

AHS

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins var stofnuð í janúar 2004. Hlutverk slökkviliðsins í almannavarnakerfinu er fjölþætt. Því er ætlað að leiða stjórnun og útfærslu björgunaraðgerða ásamt því að taka þátt í aðgerðastjórn. Meðal verkefna liðsins eru björgun úr rústum, slökkvistarf og aðhlynning og flutningur slasaðra. Í þessu skyni hefur slökkviliðið yfir að ráða góðum búnaði og sérþjálfuðum starfsmönnum. Slökkviliðsstjóri SHS er framkvæmdastjóri AHS.

 

 

Texti á takka