Ráðgjafateymi sveitarfélaganna vegna áfalla

Component: Intro Block (styling not included)

Ráðgjafateymi vegna áfalla starfar samkvæmt núgildandi samkomulagi um áfallahjálp í skipulagi almannavarna og stuðlar að því að besta þekking og úrlausnir á sviði áfallahjálpar séu til staðar í sveitarfélögunum á hverjum tíma.

Áfallahjálp er sérhæfð þjónusta við fólk sem verður fyrir áföllum og byggir á viðurkenndum aðferðum til að bregðast við bráðum áfallastreituviðbrögðum og beinist að því að draga úr uppnámi og stuðla þannig að betri aðlögun eftir áfallið.

Component: Image and text (styling not included)

Hugtakið áfall er hér notað yfir hættu sem ógnar lífi, limum eða viðurværi fólks sem og reynslu þeirra sem verða vitni að ofbeldi, líkamsáverkum eða dauða.

Meðal helstu verkefni Ráðgjafateymis vegna áfalla er að samhæfa og samræma útfærslu verkefna áfallahjálpar í sveitarfélögunum með því að vera í tengslum við yfirvöld og stofnanir sem tengjast áfallahjálp, einnig að vera ráðgefandi fyrir yfirvöld og stofnanir á viðkomandi svæði á öllum tímum. Ráðgjafateymin vinna í nánu samstarfi við neyðarstjórnir sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

 

Texti á takka