Brunavarnaáætlun

Component: Intro Block (styling not included)

Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur umsögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og samþykki sveitarstjórnar. Áætlunina skal endurskoða á fimm ára fresti. Leiðarljós brunavarnaáætlunar er markmið laga um brunavarnir nr. 75/2000, sem er að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.

 

Markmið brunavarnaáætlunar er eins og segir í 1. mgr. 13.gr. laganna að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin með lögum þessum og reglugerðum samkvæmt þeim. Jafnframt er eitt af meginmarkmiðunum með brunavarnaáætlun að sveitarfélög skilgreini hvernig þau nái að uppfylla tilgreint þjónustustig.

Component: Image and text (styling not included)

Gildandi brunavarnaáætlun

Gildandi brunavarnaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið var samþykkt og undirrituð af forstjóra Mannvirkjastofnunar og stjórn SHS fyrir hönd aðildarsveitarfélaga SHS þann 4. maí 2018.

Gildandi brunavarnaáætlun