Leiðbeiningar um smáelda fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Almenn skilyrði og frágangur
- Ekki þarf leyfi fyrir brennu eða varðeld undir 1m3. Ef brenna/varðeldur er stærri þarf að sækja um leyfi hjá sýslumanni.
- Notið örugga eldskál eða eldstæði úr málmi, leir, sandi, grjóti eða hellum.
- Gangið frá svæðinu að notkun lokinni og fjarlægið brunaleifar.
- Fáið leyfi landeigenda ef eldur er á einkalóð eða sambærilegu svæði.
Öryggi og staðsetning
- Veljið stað með góðri fjarlægð frá gróðri og mannvirkjum.
- Athugið vindátt og forðist reyk eða brælu sem veldur ónæði.
- Efni sem brennt er þarf að vera timbur sem brennur vel. Ekki nota pappa, textíl eða annað sem getur fokið sem glóð.
- Hafið vatn eða slökkvitæki við höndina.
- Látið 112 vita áður en kveikt er í og gefið upp stað og tíma. Það dregur úr líkum á að slökkvilið verði sent á staðinn vegna tilkynningar um eld.
Takmarkanir og bann
- Flugeldar eru aðeins heimilir frá 28. desember til 6. janúar, nema skoteldar í flokki 1 sjá hér.
- Flugluktir (sky lanterns) eru bannaðar.
Nánari upplýsingar í lögum og reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.