Almannavarnastigin

Component: Intro Block (styling not included)

Almannavarnir starfa eftir þrem mismunandi stigum, óvissu-, hættu- og neyðarstigi sem skilgreind eru í reglugerð um flokkun almannavarnastiga nr. 650/2009.

Ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun um almannavarnastig hverju sinni í samráði við viðkomandi lögreglustjóra ef unnt er og tilkynnir það dómsmálaráðherra. Heimilt er að lýsa yfir almannavarnaástandi þegar neyðarástand er líklegt, er yfirvofandi og/eða ríkir eða sambærilegar aðstæður eru fyrir hendi. Almannavarnastig eru flokkuð eftir alvarleika, umfangi viðbúnaðar og þörf á forgangshraða viðbragðsaðila.

Component: Accordions (styling not included)

Almannavarnastigin eru:

Title: Óvissustig Content:
  • Þegar afla þarf upplýsinga um menn sem óvissa ríkir um.
  • Þegar skip, loftfar eða menn hafa ekki komið fram á ákvörðunarstað eða ekkert heyrst frá þeim í tiltekinn tíma.
  • Þar sem óvissa ríkir um öryggi skips eða loftfars og þeirra sem í því eru.
  • Þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.
  • Þegar sóttvarnaryfirvöld meta þörf á að hefja undirbúning að viðbúnaði vegna farsótta samkvæmt ráðleggingum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO).
Title: Hættustig Content:
  • Þegar hefja þarf eftirgrennslan eftir mönnum sem óttast er um.
  • Þegar tilraunir til að ná sambandi við skip, loftfar eða menn hafa ekki borið árangur.
  • Þegar upplýsingar hafa borist sem gefa til kynna að sjóhæfni skips sé takmörkuð, flughæfni loftfars skert og menn í vanda staddir, þó ekki svo alvarlegar að líkur séu á neyðarástandi.
  • Ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.
  • Ef auka þarf viðbúnað og sóttvarnarráðstafanir vegna yfirvofandi farsóttar.
Title: Neyðarstig Content:
  • Þegar viðhafa þarf tafarlaus viðbrögð vegna manna sem óttast er um.
  • Þegar ítrekaðar tilraunir til að hafa samband við skip, loftfar eða menn hafa reynst árangurslausar og óttast er að viðkomandi sé í neyð.
  • Þegar staðfestar upplýsingar hafa borist um að skip, loftfar eða menn séu í neyð eða yfirvofandi hættu og þarfnist tafarlausrar aðstoðar.
  • Þegar slys eða hamfarir hafa orðið eða þegar heilbrigðisöryggi manna er ógnað svo sem vegna farsótta.