Formleg afhending nýrra slökkvibifreiða

Component: Intro Block (styling not included)

Í dag fer fram formleg afhending á fjórum nýjum slökkvibifreiðum þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tekur við lyklunum fyrir hönd stjórnar SHS og afhendir slökkviliðinu. Seljandi bifreiðanna er Ólafur Gíslason & Co. hf. og mun fulltrúi frá þeim afhenda Degi lyklana. Stutt sýning verður síðan á bifreiðunum og búnaði þeirra. Nýju bifreiðarnar eru mjög fullkomnar og búnar nýjum slökkvibúnaði sem ekki hefur verið notaður áður hér á landi, þar á meðal búnaði sem getur gert göt á byggingarefni (sprautað í gegnum þau).

Um tímamót er að ræða í starfsemi og þjónustu SHS, ekki síst vegna þess að um fjórar bifreiðar er að ræða (eina á hverja starfsstöð SHS) og líka vegna þess að það hefur ekki verið tekin í notkun ný slökkvibifreið hjá SHS frá árinu 2003. Það er því mikill spenningur í loftinu og þjálfun starfsmanna á nýju bílana er þegar hafin.