Fórnarlamba umferðaslysa minnst

Component: Intro Block (styling not included)

Ár hvert er þriðji sunnudagur í nóvember skilgreindur sem alþjóðlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa.

Með því móti er verið að halda minningu þeirra í heiðri og hvetja fólk til að leiða hugann að þeirri ábyrgð sem það ber sem þátttakandi í umferðinni. Sérstök minningarathöfn fer fram við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 19. nóvember nk. og hefst kl. 11. Að henni lokinni verður boðið upp á kaffi í bílageymslu bráðamóttökunnar.
Allir eru velkomnir og fólk er hvatt til að mæta og sýna fórnarlömbum umferðarslysa hluttekningu og leiða einnig hugann að fórnfúsu starfi viðbragðsaðila.