Fyrsta skilti sinnar tegundar

Component: Intro Block (styling not included)

Intro texti

Intro texti minni

Mikill fjöldi fólks, sérstaklega erlendir ferðamenn, á leið þarna um og yfir vetrartímann þarf við ákveðnar aðstæður að loka veginum vegna veðurs. Í kjölfarið er nauðsynlegt að opna fjöldahjálparstöð þar sem fólk getur fengið skjól á meðan versta veðrið gengur yfir. Það hafði borið á að fólk vissi ekki hvert það gæti farið og hvar stöðin væri.

Fjöldahjálparstöðvar eru starfræktar á neyðartímum til að bjóða þolendum náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða öruggt skjól. Þar er þeim séð fyrir helstu grunnþörfum svo sem mat, fatnaði og húsaskjóli. Einnig er gert ráð fyrir að í boði sé ýmis frekari þjónusta svo sem skyndihjálp, sálrænn stuðningur, ráðgjöf og upplýsingar. Á heimasíðu Rauða krossins er hægt að sjá staðsetningu fjöldahjálparstöðva um land allt ásamt frekar upplýsingum. Það eru margir sem koma að lokun vega og ferlið sem fer í gang er margslungið. Veðurstofa Íslands gefur viðvaranir um veður og vegna náttúruvár, Vegagerðin veitir upplýsingar um færð á vegum og tekur ákvörðun um lokun, lögregla og björgunarsveitir sinna lokunum og Rauði krossinn opnar og rekur fjöldahjálparstöðvar.

Mikilvægt er að virða lokanir, en allur akstur er bannaður á leiðum meðan lokanir standa yfir. Viðbragðsaðilar eiga auðveldara með að halda neyðarþjónustu gangandi ef fólk virðir lokanir. Jafnframt á Vegagerðin auðveldara með að hreinsa götur og ryðja vegi til þess að hægt sé að opna þá  strax og viðvörun fellur úr gildi.

Með þessu skilti vonumst við til þess að auðvelda fólki að komast í skjól á sem öruggastan hátt.

Við viljum benda áhugasömum á að hægt er að gerast sjálfboðaliðar í starfi Rauða krossins og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og eru þeir hvattir til að skoða heimasíður hreyfinganna.

Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.