Inntökuferli lokið

Slökkviliðið hefur nú ráðið rúmlega 20 einstaklinga til framtíðarstarfa, en eins og kunnugt er auglýstum við eftir starfsmönnum í byrjun janúar. Umsækjendur þreyttu fjölmörg inntökupróf og tóku þátt í mjög krefjandi inntökuferli sem nú hefur skilað slökkviliðinu mjög hæfum hópi starfsmanna. Við þökkum öllum þeim sem sóttu um fyrir áhugann og hvetjum þá sem ekki fengu starf í þetta sinn til að sækja um aftur þegar við auglýsum.