Opið hús hjá slökkviliðinu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. var með opið hús fyrir almenning laugardaginn 10. júní, til að kynna starfsemina.

Á staðnum voru slökkvi- og sjúkrabílar, kranabíll og hoppukastalar. Ýmsar uppákomur voru í boði fyrir börnin sem skemmtu sér konunglega.