Slökkviliðið heimsækir leikskólana

Nú er runninn upp sá tími ársins þegar forvarnarsvið og varðlið slökkviliðsins heimsækja leikskóla á höfuðborgarsvæðinu til að fræða 6 ára börn um eldvarnir. Þessi fræðsla hefur án efa skilað sínu hvað forvarnir snertir, enda börnin mjög áhugasöm um eldvarnir heimilanna. Heimsóknirnar standa yfir alla virka daga frá 28. apríl- 20. maí 2020 og hvetjum við foreldra til að nýta tækifærið og ræða flóttaleiðir við börnin, halda brunaæfingar heima og kanna hvort bæta þurfi við eldvarnir heimilisins eða laga þær sem fyrir eru, s.s. reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnarteppi.