Verkefni okkar eftir útköll þar sem um staðfest eða hugsanlegt COVID-19 smit var að ræða eru krefjandi. Þegar útkalli lýkur tekur við talsverð vinna við að sótthreinsa bílinn, allan búnað og einnig þurfa þeir sem sinntu útkallinu að skipta um fatnað til að koma í veg fyrir að smit berist á milli sjúklinga eða í okkar fólk. Eftir að starfsmenn eru búnir að sótthreinsa sjúkrabílinn er hann settur inn í aðstöðu í Skógarhlíðinni þar sem hann er sótthreinsaður með sérstökum búnaði.
Mikilvægt er að fólki bregði ekki í brún ef við mætum í útköll til ykkar í hlífðarfatnaði, hann er okkur öllum mikilvægur. Hjálpumst öll að við að hefta útbreiðslu smits og vernda okkar framlínufólk sem sinnir samfélagslega mikilvægri þjónustu.