Component: Image and text (styling not included)
Texti á takka
Farðu út og vertu úti
Ef eldur kemur t.d. upp þar sem fólk sefur geta hiti og reykur valdið dauða nema fólk hafi áætlun um hvernig bregðast eigi við. Hver og einn verður að taka sjálfstæða ákvörðun hvort hann eigi að ráðast til atlögu með slökkvibúnaði við eld eða ekki. Farðu út og vertu úti eru einföld og skýr skilaboð sem ráðlagt er að fylgja ef upp kemur reykur eða eldur. Hringdu í slökkviliðið. 112. Tilkynntu ef einhver er lokaður inni og takið á móti viðbragðsaðilum. Húsfélög á höfuðborgarsvæðinu geta óskað eftir skoðun eldvarna í sameign gegn gjaldi. Gjaldskrá slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins má finna á heimasíðu SHS.
Eftirfarandi atriði þarf að huga að vegna viðbragðs- og flóttaáætlunar:
- Reykskynjarar sem láta vita um reyk og vekja fólk.
- Mikilvægt er að hafa a.m.k. tvær greiðar flóttaleiðir frá íbúðinni. Æskilegt er að hafa björgunarop frá svefnherbergjunum. Það geta verið framdyr og bakdyr, svefnherbergisgluggar, svalir eða gluggi (björgunarop). Gott að setja upp neyðarstiga af efri hæðum.
- Flóttaáætlun sem teiknuð er á blað. Umræður með heimilisfólki og æfingar.
- Aldrei má nota lyftu í eldsvoða því hún getur stöðvast á þeirri hæð sem eldurinn er á.
- Hurðir og björgunarop á að vera auðvelt að opna og ekki má lykillæsa hurðum í flóttaleiðum.
- Hreyfihamlaðir ættu að búa í íbúðum þar sem auðvelt er að komast út eða að bjarga þeim.