Menntun
- Framhaldsskólapróf
- Hafa löggildingu frá Landlækni sem EMT-B
- Hafa starfað við sjúkraflutninga sem EMT-B-I í a.m.k. eitt ár
- Hafa C-1 meirapróf
- Góð samskiptahæfni, lausnamiðað hugarfar, frumkvæði, drifkraftur og reglusemi áskilin
- Gott siðferði, samviskusemi og áhuga á starfi bráðatæknis
- Hefur sýnt ábyrgð, trúnað og fagmennsku sem sjúkraflutningamaður
- Standast þrek og styrktarpróf hjá SHS
- Standast læknisskoðun hjá SHS
- Góð íslsneskukunnátta bæði tal- og ritmál
- Góð enskukunnátta
- Kunnátta á þriðja tungumáli er kostur
Í þessu prófi er fyrst og fremst verið að leita eftir grunngetu til þess að leysa þau verkefni sem geta komið upp við sjúkraflutninga og því er prófið eins starfstengt og unnt er.
Þolþáttur
Göngupróf á hlaupabretti með 10 kg vesti.
Lýsing:
Bretti er stillt á 6 km hraða og 3% halla í tvær mínútur en hallinn síðan aukin í 6% halla næstu 8 mínútur. Viðkomandi þarf að klára gönguprófið án þess að að stoppa eða halda í bretti og geta tjáð sig á meðan prófi stendur.
Styrkur og hreyfigeta
Réttstaða: með réttstöðugrind/ Trappbar. 5 lyftur / þyngd 60 kg.
Hér er verið líkja eftir vinnu við börur en einnig verið að athuga með gripstyrk og rétta líkamsbeytingu.
Planki: 1 mínúta. Halda þarf planka á olnboga og leitast við að halda búknum beinum.
Próf á grunngetu á kvið- og bakvöðvum
Dúkka: 70 kg og koma henni 20 metra með frjálsri aðferð. Hámarkstími 1 mínúta.
Hér er fyrst og fremst verið að skoða hvort viðkomandi geti ráðið við sjúkling úr erfiðum aðstæðum.
Stigastóll: Ganga með rafmagnsstigastól sem er 27 kg upp á aðra hæð og niður aftur – 90 sek er hámarkstími.
Stigstóllinn er þungur og erfiður í burði en undir hverjum og einum að leysa þetta verkefni á til settum tíma.