Leiðbeiningar um smáelda

Leiðbeiningar um smáelda fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Almenn skilyrði og frágangur

  • Ekki þarf leyfi fyrir brennu eða varðeld undir 1m3. Ef brenna/varðeldur er stærri þarf að sækja um leyfi hjá sýslumanni.
  • Notið örugga eldskál eða eldstæði úr málmi, leir, sandi, grjóti eða hellum.
  • Gangið frá svæðinu að notkun lokinni og fjarlægið brunaleifar.
  • Fáið leyfi landeigenda ef eldur er á einkalóð eða sambærilegu svæði.


Öryggi og staðsetning

  • Veljið stað með góðri fjarlægð frá gróðri og mannvirkjum.
  • Athugið vindátt og forðist reyk eða brælu sem veldur ónæði.
  • Efni sem brennt er þarf að vera timbur sem brennur vel. Ekki nota pappa, textíl eða annað sem getur fokið sem glóð.
  • Hafið vatn eða slökkvitæki við höndina.
  • Látið 112 vita áður en kveikt er í og gefið upp stað og tíma. Það dregur úr líkum á að slökkvilið verði sent á staðinn vegna tilkynningar um eld.


Takmarkanir og bann

  • Flugeldar eru aðeins heimilir frá 28. desember til 6. janúar, nema skoteldar í flokki 1 sjá hér.
  • Flugluktir (sky lanterns) eru bannaðar.

Nánari upplýsingar í lögum og reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.