112-dagurinn er haldinn árlega um allt land þann 11. febrúar og að þessu sinni verður fjölbreytt dagskrá í Hörpunni. Þar mun dómsmálaráðherra flytja ávarp, verðlaun veitt í Eldvarnargetrauninni og skyndihjálparmaður RKÍ útnefndur, svo eitthvað sé nefnt. Einnig munu viðbragðsaðilar sýna fjölbreyttan tækjakost, s.s. sjúkrabíla, björgunarbíla, björgunarbáta, vélsleða, lögreglubíla, slökkvibíl, mótorhjól og kafarabíl. Dagskráin hefst í Flóa í Hörpu kl. 15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.