Component: Intro Block (styling not included)
Í tilefni af eldvarnarátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna ,,bjargaði” slökkviliðið Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands úr ímynduðu eldhafi á rýmingaræfingu í HÍ. Viðvörunarkerfi skólans fór í gang og rektor þurfti að stökkva út um glugga á 3. hæð í körfubíl sem flutti hann heilu og höldnu til jarðar. Fjöldi háskólafólks fylgdist með og hafði gaman af. Eldvarnarátakið er árlegt samvinnuverkefni SHS, LSS og HÍ.
Intro texti minni