Viðbragðsáætlanir segja til um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar vár/slysa hvort sem er á almannavarnastigi eða á almennum tímum.
Viðbragðsáætlanir á höfuðborgarsvæðinu eru unnar í umboði AHS í samvinnu við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, SHS, fulltrúa svæðisstjórnar björgunarsveita á svæðinu, Rauða krossinn á Íslandi, LSH og í samráði við ríkislögreglustjóra.
Markmið viðbragðsáætlana er að tryggja skipulögð viðbrögð við vá og að þolendum berist nauðsynleg aðstoð á sem skemmstum tíma. Viðbragðsáætlanir eru unnar eftir reglugerð um gerð viðbragðsáætlana nr. 323/2010.
Með því að vera vel undirbúin, er hægt að draga úr slæmum afleiðingum fyrir samfélagið og koma verkefnum í gang eins fljótt og auðið er. Með samhæfingu líkt og unnið er með í viðbragðsáætlunum eru allir viðbragðsaðilar með sama skilning á verkefninu, allar einingar með sömu upplýsingar og þekkja hlutverk hvers annars.