Logi og Glóð fræða leikskólabörn
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins heimsækir árlega elstu börnin á leikskólum á þjónustusvæðinu til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Slökkviliðsmenn hafa Loga og Glóð sér til halds og trausts í þessum heimsóknum, en þau eru aðstoðarmenn slökkviliðsins í þessu verkefni. Verkefnið hefur verið starfrækt síðan vorið 2007 og eru allir leikskólar á höfuðborgarsvæðinu heimsóttir, en þeir eru í kringum 150 talsins. Við upphaf verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu þar sem hlutverk hvors aðila fyrir sig er skilgreint og afhendir SHS ýmis gögn sem tengjast verkefninu.
Markmið verkefnisins er þríþætt:
- Að tryggja góðar og traustar eldvarnir í leikskólum í samvinnu við starfsfólk.
- Að veita elstu börnunum fræðslu um eldvarnir í leikskólum í samvinnu við starfsfólk.
- Að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir á heimilum í lagi og veita þeim ráðgjöf í því sambandi.
Hlutverk slökkviliðsins
Starfsfólk slökkviliðsins heimsækir hvern leikskóla einu sinni á ári í samráði við starfsfólk. Fulltrúar SHS fara yfir ástand eldvarna með leikskólastjóra og öðru starfsfólki og gert er samkomulag um eldvarnir og fræðslu.
Slökkviliðsmenn ræða við börnin um eldvarnir, segja þeim frá starfi slökkviliðsmanna og sýna þeim ýmsan búnað. Þá afhendir SHS börnunum litabók, en aftan á henni er listi yfir eldvarnir heimilisins sem börn og foreldrar geta notað til að fara yfir eldvarnir á heimili barnsins.
Hlutverk leikskólans
Heimsókn slökkviliðsins er samkomulag um eldvarnir og fræðslu undirritað og hengt á vegg við inngang á allar deildir leikskólans svo foreldrar viti af verkefninu og geti kynnt sér efni þess. Samkvæmt samkomulaginu sér leikskólinn til þess að eldvarnir séu ævinlega í lagi og til þess að svo megi vera framkvæmir leikskólinn eigið eldvarnaeftirlit mánaðarlega samkvæmt gátlista. Leikskólinn gerir jafnframt rýmingaráætlun og æfir rýmingu árlega samkvæmt leiðbeiningum. Gert er ráð fyrir að börnin í elsta árganginum taki þátt í þessu mánaðarlega eftirliti ásamt starfsfólkinu.
Þegar starfsmenn SHS heimsækja leikskólann árlega sýnir leikskólinn fram á að mánaðarlegt eftirlit hafi farið fram og rýming hafi verið æfð á undangengnu ári, eða frá síðustu heimsókn. Leikskólinn leggur þá einnig fram umbeðin gögn til slökkviliðs sem staðfesta eldvarnir.
Hér eru linkar á leiki með Loga og Glóð ásamt myndbandinu sem sýnt er í heimsókninni.