Árið 2020 í tölum

Component: Intro Block (styling not included)

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir slökkvi- og björgunarútköllum tengt slökkviliði sem og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu. Heildarfjöldi boðana þ.e. slökkviliðs og sjúkraflutningar í fyrra nam 34.240 í samanburði við  33.356 árið 2019. Af þessum boðunum voru 2.327 vegna Covid-19.

Intro texti minni

Component: Statistics (styling not included)

Titill vinstra megin við tölfræði

Icon: fireExtinguisher 34.240 Heildarútköll
Icon: plus 32.979 Sjúkraflutningar
Icon: flame 1.261 Útköll slökkviliðs
Component: Image and text (styling not included)

Boðanir sjúkaflutninga

Boðanir vegna sjúkraflutninga námu 32.979 árið 2020 sem er aukning um 793 boðanir á milli ára og þar af voru 8.221 forgangsútköll. Í bylgju 1 af Covid-19 sem stóð frá 28. febrúar – 14. júní fækkaði hefðbundnum sjúkraflutningum um 460 miðað við sama tímabil á árinu 2019. Í þriðju bylgjunni sem hófst 15. september sl. og stendur enn fjölgaði sjúkraflutningum um 1.083 miðað við fyrra ár.

Texti á takka

Í fyrstu bylgjunni voru aðeins 6 dagar þar sem boðanir voru yfir 100 á sólarhring en í bylgju 3 voru þeir 36, þar af var slegið met í október þegar boðanir fóru í 160 á sólarhring. Það er erfitt að staðhæfa af hverju þessi fækkun varð í bylgju eitt en á sama tíma sóttu færri sér læknisaðstoðar á heilsugæslum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Meðaltalið á þeim dögum sem boðanir voru yfir 100 dögum á báðum tímabilum 2019 og 2020 voru svipuð, um það bil 107 flutningar í hvert sinn, en var 117 í þriðju bylgjunni.

Boðanir hjá okkur eru fjölbreyttar, á landi, sjó og á fjöllum. Boðanir í fæðingar barna voru svipaðar milli ára eða 223 en 226 árið 2019. Sjúkraflutningafólk okkar tekur reglulega á móti börnum í sjúkrabifreiðum og í heimahúsum, en í september átti sá einstaki atburður sér stað að fyrsta barnið fæddist í bílasalnum okkar í Skógarhlíðinni og gekk fæðingin vel.

Component: Image and text (styling not included)

Boðanir slökkviliðs

Heildarfjöldi útkalla slökkvi- og björgunarstarfa árið 2020 voru 1.261 sem var aukning um 91 á milli ára, þar af voru 714 forgangsútköll sem var aukning um 101 á milli ára. Útköllum vegna elds í byggingum fjölgaði úr 83 í 121 á milli ára. Útköll slökkviliðs eru margvísleg en fyrir utan eldsvoða eru t.d. vatnslekar, óveðursútköll, kafaraútköll, umferðarslys, björgun úr sjó og vatni o.fl.

Texti á takka
Component: Image and text (styling not included)

Erfitt ár að baki

Árið 2020 var þungt hjá okkur, í upphafi bylgju 1 var starfsfólki sem sinnti slökkviliðs- og sjúkraflutningum skipt upp í minni hópa til að minnka líkur á því að missa marga starfsmenn í veikindi eða sóttkví ef upp kæmi smit. Á tímabili voru starfsstöðvar okkar 11 talsins víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.  Þessi ráðstöfun reyndist vel ef horft er til fjölda smita meðal starfsfólks en var að sama skapi íþyngjandi aðgerð.

Texti á takka