Samningur um sjúkraflutninga undirritaður

SHS, samningur um sjúkraflutninga, Runólfur Pálsson, forstjóri LSH, Dagur B. Eggertsson, Borgarstjóri, Willum Þór Þórsson, ráðherra og María Heimisdóttir, forstjóri SÍ.
Component: Intro Block (styling not included)

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hafa gert með sér nýjan samning um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til næstu fimm ára.

Í samningnum felast ýmis nýmæli sem miða að því að þróa og efla þjónustuna, með áherslu á aukið samstarf aðila um framkvæmd samningsins, þátttöku SHS í innleiðingu tækni- og fjarheilbrigðislausna og ákvæði sem festir hlutverk vettvangsliða í sessi. Samningurinn var formlega undirritaður og staðfestur í dag af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra, Maríu Heimisdóttur forstjóra SÍ, Degi B. Eggertssyni formanni stjórnar SHS og Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala, á slökkvistöð SHS í Skútahrauni í Hafnarfirði.

Til marks um umfang þjónustunnar sem samningurinn fjallar um nemur kostnaður vegna hennar vel á annan milljarð króna á ári. Samningurinn er gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins og byggir í grundvallaratriðum á samningi aðila um sjúkraflutninga sem gerður var haustið 2014. Fjármögnun hans felst annars vegar í fastri mánaðarlegri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga og Landspítala og hins vegar í greiðslum fyrir hvern flutning. Hann tekur til allra sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu auk flutninga fyrir Landspítala.

Áhersla á gæði og þróun þjónustunnar
Í þessum nýja samningi er lögð aukin áhersla á gæði þjónustunnar, gæðavísa til að meta gæði og árangur þjónustunnar. Auk þess er lögð aukin áhersla á samstarf aðila um framkvæmd samningsins, þátttöku SHS í innleiðingu tækni- og fjarheilbrigðislausna sem ætlað er að styðja við og bæta þjónustuna. Þá verða vettvangsliðar hluti af viðbragðskerfi sjúkraflutninga sem tryggir hlutverk þeirra sem fyrsta viðbragð á vettvangi í sessi. Jafnframt er stefnt að því á samningstímanum verði gerðar ákveðnar breytingar í sjúkraflutningum með það að markmiði að ná fram aukinni hagkvæmni í þjónustunni. Með aukinn samvinnu og samþættingu heilbrigðisþjónustu er markmiðið að draga úr þörf fyrir sjúkraflutninga með því að veita fullnægjandi úrlausn á staðnum.

© MOTIV, Jón S.

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *